Tónlistarkonan Demi Lovato, sem var flutt með hraði á spítala eftir ofskömmtun fíkniefna 24. júlí, er komin í meðferð í Chigaco í Illinois-ríki í Bandaríkjunum. Hún hefur glímt við fíknisjúkdóma, átröskun og er greind með tvíhverfa lyndisröskun (bipolar disorder). Hún mun vinna með sérfræðingi á sviði fíknisjúkdóma og geðheilsu í Chigaco. Hún mun dvelja á meðferðarheimilinu í nokkra mánuði að sögn fjölskyldu hennar.
Samkvæmt fjölskyldu hennar hafa samskipti stjörnunnar verið takmörkuð allt frá því hún var lögð inn á spítalann, en hún komst til meðvitundar stuttu eftir að hún kom á spítalann. Hún lá inni í um tvær vikur, en hún var mikið veik eftir ofskömmtunina.
Lovato hefur þurft að aflýsa restinni af tónleikaferðalagi sínu Tell Me You Love Me en hún átti að spila í Mexíkó, Argentínu, Brasilíu og Chilé í haust.