Fyrirsætur hrauna yfir Kendall Jenner

Kendall Jenner.
Kendall Jenner. AFP

Kollegar Kendall Jenner í fyrirsætuheiminum eru ekki sáttar með ummæli hennar í LOVE-tímaritinu á dögunum. Þar sagðist Kendall alltaf hafa valið „giggin“ sín af kostgæfni og ekki komið fram á 30 tískusýningum á hverri árstíð. Þessi ummæli telja aðrar fyrirsætur vera niðurlægjandi og móðgandi því að flestir í þessum geira hafa þurft að vinna sig upp.

Fyrirsætan Jac Jagaciak skrifar: „Þetta gerir mig svo reiða. Þetta er móðgun við bókstaflega 99 prósent af þeim sem vinna í þessum geira. Já þau þurftu að vinna sig upp. Plís komdu þér í samband við raunveruleikann.“

Önnur fyrirsæta, Daria Strokous, skrifaði á Instagram: „Það sem þessar stelpur gera er að gera sitt besta til að vinna sig upp og reyna að afla sér tekna til að sjá fyrir sér og fjölskyldu sinni. Og á meðan ég man, það eru 70 sýningar á hverri árstíð og við erum allar stoltar af öllum stelpunum sem gera það.“ 

Talsmaður Kendall sagði í samtali við People að orð Kendall hafi verið tekin úr samhengi og að í miðju viðtali hafi hún fattað að sýningarnar væru nær því að vera 80. Kendall dáist að fyrirsætunum sem eru svo duglegar, sagði talsmaðurinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson