Búin að missa sambandið við vinina

Líf Meghan hertogaynju er breytt eftir að hún gifti sig …
Líf Meghan hertogaynju er breytt eftir að hún gifti sig í maí. AFP

Það er ekki bara dans á rósum að vera hluti af bresku konungsfjölskyldunni en Meghan hertogaynja hefur fengið að kynnast því. People greinir frá því að Meghan hafi misst samband við nána vini sína síðan hún gifti sig í maí.

Heimildarmaður People segir að hertogaynjan eigi erfitt með að ákveða hverjum hún geti treyst og hverjum ekki. Hún á þó enn nokkra vini og er sögð í sambandi við smáan hóp af vinum sínum sem hún getur hringt í. 

Hún eyðir þó líka tíma með þeim og í ágúst fór hún leynilega ferð til Toronto í fimm daga þar sem hún heimsótti vinkonu sína, stílistann Jessicu Mulroney. Meghan horfði líka á vinkonu sína, tenniskonuna Serenu Williams, á Wimbledon-mótinu ásamt svilkonu sinni Katrínu hertogaynju. 

Meghan Markle horfði á Serenu Williams á Wimbledon.
Meghan Markle horfði á Serenu Williams á Wimbledon. AFP
Meghan heimsótti Jessicu Mulroney í ágúst.
Meghan heimsótti Jessicu Mulroney í ágúst. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson