Búinn að missa yfir 13 kíló

Rob Kardashian á erfitt með að halda sér í kjörþyngd.
Rob Kardashian á erfitt með að halda sér í kjörþyngd. skjáskot/Instagram

Rob Kardashian er búinn að draga sig út úr sviðsljósinu og er að vinna í sjálfum sér. Nú er Kardashian-bróðirinn búinn grennast mikið en hann hefur lengi átt erfitt með að halda sér í eðlilegri þyngd. 

Segir heimildarmaður ET að raunveruleikastjarnan sé að taka líf sitt í gegn sérstaklega fyrir dóttur sína, Dream, sem verður tveggja ára í næsta mánuði. Telur heimildarmaðurinn að Kardashian-bróðirinn sé búinn að missa eitthvað á bilinu 13 til 22 kíló. 

„Að komast út úr sviðsljósinu var mikilvægt fyrir Rob,“ sagði heimildarmaðurinn og segir það hafa einnig verið gott fyrir hann að hætta á Instagram. „Hann þurfti að breyta lífi sínu algjörlega, hlutir voru komnir í stjórnleysi og heilsa hans og sambönd liðu fyrir það.“

Rob Kardashian hefur talað opinberlega um glímu sína við aukakílóin og árið 2016 greindi hann frá því að hann hefði misst af brúðkaupi Kim Kardashian og Kanye West vegna þess hversu óöruggur hann var með líkama sinn. 

Rob Kardashian er hluti af Kardashian-fjölskyldunni. Hér má sjá systur …
Rob Kardashian er hluti af Kardashian-fjölskyldunni. Hér má sjá systur hans Kim Kardashian og móður Kris Jenner. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson