Skráningu í Jólastjörnuna 2018 lauk um helgina en tæplega 200 krakkar sóttu um að fá að taka þátt í Jólastjörnunni 2018. Á næstu dögum mun dómnefndin skoða allar prufurnar sem bárust. 12 krakkar verða boðaðir í tökur á sjónvarpsþáttunum sem verða sýndir hjá Sjónvarpi Símans.
Reynsluboltarnir Björgvin Halldórsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Svala Björgvinsdóttir sitja í dómnefndinni í ár en Gunnar Helgason er stjórnandi þáttanna. Þættirnir verða þrír talsins og verður sigurvegarinn afhjúpaður í lokaþættinum. Þá kemur í ljós hver verður valinn Jólastjarnan 2018 og fær að standa á Eldborgarsviði Hörpu með helstu söngvurum þjóðarinnar á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins.