Lætur Kidman heyra það

Nicole Kidman og Reese Witherspoon eru samstarfskonur og nágrannar.
Nicole Kidman og Reese Witherspoon eru samstarfskonur og nágrannar. AFP

Leikkonan Nicole Kidman er frá Ástralíu rétt eins og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Keith Urban en hjónin vekja oft mikla athygli fyrir ást sína á rauða dreglinum. Kdiman segir þjóðerni þeirra hafa mikil áhrif á það að þau syndi mikið og segir vatnið heilandi.

Í nýju viðtali við Allure segir Kidman frá því að þau Urban eigi hús við strönd og fara þau í sjóinn áður en þau fá sér morgunmat. 

Næsti nágranni er leikkonan og samstarfskona Kidman Reese Witherspoon og er hún dugleg að gagnrýna þessar sjóferðir þeirra Urban. Um leið tekur hún þátt í að gera grín að ástaratlotum hjónanna sem birtast reglulega í fréttum. 

„Hvað eru þið að gera í vatninu, turtildúfurnar ykkar?“ Segir Kidman Witherspoon kalla á þau þegar hún sér þau í sjónum á morgnana. Witherspoon sem fer sjaldan í sjóinn bætir því við að sögn Kidman að þau séu klikkaðir ástralskir krakkar. 

Kieth Urban og Nicole Kidman eru alltaf jafn ástfangin.
Kieth Urban og Nicole Kidman eru alltaf jafn ástfangin. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson