Rappkonan Cardi B skaust hratt upp á stjörnuhimininn í fyrra og eignaðist svo barn í júlí. Hún tók sér þó ekki frí frá vinnu og í tískupartíi á miðvikudaginn kom hún öllum á óvart með ótrúlegri sviðsframkomu.
Var rappkonan að kynna samstarf sitt og Fashion Nova og mætti á rauða dregilinn í stuttri dragt með bert á milli. Hún var hins vegar komin í rauðan latexgalla þegar hún fór upp á svið og byrjaði að hrista rassinn eða að „twerka“ eins og það er kallað. Eftir að hafa hrist rassinn í dágóðan tíma hoppaði hún beint í split, eitthvað sem ekki er mælt með að fólk reyni heima.
Myndband af atriðinu birtist á Twitter.
Cardi just twerked into a split 😰 @iamcardib #FnxCardi pic.twitter.com/OOXlwiVQKV
— 2Cool2Blog (@2Cool2Blogggg) November 15, 2018