Rapparinn Emmsjé Gauti frumsýndi nýjasta myndband sitt, við lagið „Mér líður vel“, á föstudaginn var í Borgum, félagsmiðstöð aldraðra, í Spönginni. Þá sýndi hann einnig hæfileika sína í vöfflubakstri.
Í myndbandinu leika eldri borgarar með Gauta og standa sig vel, eins og sjá má. Lagið „Mér líður vel“ má finna á nýútkominni breiðskífu Gauta, Fimm, sem er sú fimmta sem hann sendir frá sér.
Leikstjóri myndbandsins er Freyr Árnason.