Í síðustu viku bárust fréttir af því að Mr. Big hefði átt að deyja í mynd númer þrjú af Beðmálum í borginni og nú hafa fleiri upplýsingar um söguþráðinn lekið í fjölmiðla. Ástæða þess að líklega verður ekki af myndinni er sú að Kim Cattrall sem lék Samönthu vill ekki leika í þriðju myndinni.
Ástæða þess að Cattrall vildi ekki vera með var ekki bara dauði Mr. Big og laun Cattrall samkvæmt heimildamanni E!. „Þetta var slæmt handrit,“ sagði heimildamaðurinn.
Það sem var að hluta til slæmt fyrir persónu Cattrall í handritinu var að sonur Miröndu, hinn 14 ára gamli Brady, var gripinn glóðvolgur við sjálfsfróun. Átti hann auk þess að senda Samönthu myndir af typpinu sínu.