Bandaríska söngkonan Nancy Wilson er látin 81 árs að aldri. Wilson hlaut meðal annars, Grammy-verðlaunin á sínum tíma fyrir sitt frægasta lag How Glad I Am árið 1964.
Að sögn umboðsmanns hennar lést hún í Kaliforníu í gær eftir að hafa verið lengi veik.
Nancy Wilson fékk einnig Grammy-verðlaun 2005 og 2007 en hún söng alls konar tónlist, einkum djass.