Þúsundþjalasmiðurinn Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur nú lokið einkaþjálfunarnámi og býður fram þjónustu sína í World Class. Ásdís Rán er fjölhæf kona en hún er ekki bara með einkaþjálfunarpróf og kann að sitja fyrir heldur er hún líka með þyrluflugmannspróf eins og frægt er orðið.
„Hef hafið störf við einkaþjálfun hjá Worldclass. Mitt markmið er að hjálpa viðskiptavinum mínum að ná jafnvægi í lífstíl, heilsurækt og vellíðan,“ segir Ásdís Rán á Instagram.
„Ég ætla að ná mér í réttindi þar svona aukalega þannig að ég geti nýtt mína 20 ára reynslu í þessum heilsu- og fitnessbransa í eitthvað gott í mínum frítíma,“ sagði Ásdís Rán í samtali við Smartland í fyrra en nú eru einkaþjálfunarréttindin komin í hús.
View this post on InstagramA post shared by Asdis Ran aka The IceQueen (@asdisran) on Mar 5, 2019 at 3:01pm PST