Aldrei fór ég suður fór vel af stað í geymslu Kampa á Ísafirði í gær. Blóðmör stigu fyrstir á svið og svo koll af kolli og haft var eftir rokkstjóra hátíðarinnar að stemningin hefði náð hápunkti með Jóa Pé og Króla og Herra Hnetusmjör um tíu leytið.
Hátíðin heldur áfram í kvöld og á meðal þeirra sem koma þá fram eru Svala Björgvinsdóttir og hljómsveitin Mammút.
Ljósmyndirnar tala sínu máli.