Ingvar verðlaunaður í Cannes

Ingvar E. Sigurðsson, annar frá vinstri, ásamt öðrum verðlaunahöfum Critics‘ …
Ingvar E. Sigurðsson, annar frá vinstri, ásamt öðrum verðlaunahöfum Critics‘ Week í Cannes. Ljósmynd/Semaein De La Critique/Twitter

Ingvar E. Sigurðsson hlaut í dag verðlaun sem besti leikarinn á Critics‘ Week, einni af hliðardag­skrám Cann­es kvik­mynda­hátíðar­inn­ar, sem fram fer þessa dagana.

Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur, nýjasta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmarssonar, var heimsfrumsýnd á Critics‘ Week og er hún ein af sjö myndunum sem valda voru í keppni á hliðarviðburðinum. Verðlaunin hlýtur Ingvar fyrir aðalhlutverk í myndinni, þar sem hann túlkar lögreglustjórann Ingimund sem hef­ur verið í starfs­leyfi frá því að eig­in­kona hans lést óvænt af slys­för­um.

Ingvar E. Sig­urðsson fer með aðalhlutverk í Hvítum, hvítum degi …
Ingvar E. Sig­urðsson fer með aðalhlutverk í Hvítum, hvítum degi ásamt Ídu Mekkín Hlyns­dótt­ur. Ingvar hlaut verðlaun sem besti leikarinn á Critics‘ Week, einni af hliðardag­skrám Cann­es kvik­mynda­hátíðar­inn­ar sem stendur nú yfir. ljósmynd/Pierre Caudevelle

Í sorg­inni ein­beit­ir hann sér að því að byggja hús fyr­ir dótt­ur sína og afa­st­elpu, þar til at­hygli hans bein­ist að manni sem hann grun­ar að hafi átt í ástar­sam­bandi við konu sína. Fljót­lega breyt­ist grun­ur Ingi­mund­ar í þrá­hyggju og leiðir hann til rót­tækra gjörða sem óhjá­kvæmi­lega bitn­ar einnig á þeim sem standa hon­um næst. Þetta er saga um sorg, hefnd og skil­yrðis­lausa ást. Tök­ur á mynd­inni fóru fram á Hornafirði, Stöðvarf­irði, Fá­skrúðsfirði og í Oddsk­arði.

Myndin var frumsýnd í vikunni og hefur hún hlotið mikið lof. Blaðamaður Screen In­ternati­onal, Wen­dy Mitchell, sagði  á sam­fé­lags­miðlum að mynd­in sé meðal þeirra mest um­töluðu á hátíðinni og þá segir gagn­rýn­andi Hollywood Report­er að mynd­in sé „kröft­ug og frum­lega út­hugsuð“ og fer einnig fögr­um orðum um Ingvar.

Hvít­ur, hvít­ur dag­ur verður frum­sýnd í kvik­mynda­hús­um á Íslandi 6. sept­em­ber.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes