Hvítur, hvítur dagur á Critics's Week

Hvítur, hvítur dagur.
Hvítur, hvítur dagur.

Hvítur, hvítur dagur, nýjasta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Hlyns Pálmasonar, er ein af sjö myndum sem valdnar hafa verið í keppni á Critics‘ Week, einni af hliðardagskrám Cannes kvikmyndahátíðarinnar, þar sem hún verður heimsfrumsýnd. Critics' Week mun fara fram frá 15.-23. maí, samhliða hátíðinni, segir í fréttatilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Hvítur, hvítur dagur segir frá Ingimundi lögreglustjóra sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst. Þetta er saga um sorg, hefnd og skilyrðislausa ást.

Tökur á myndinni fóru fram á Hornafirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og í Oddskarði.

Hlynur Pálmason leikstýrir og skrifar handritið að Hvítum, hvítum degi. Framleiðandi myndarinnar er Anton Máni Svansson fyrir Join Motion Pictures og einn af yfirframleiðendum er Guðmundur Arnar Guðmundsson, en myndin er íslensk/dönsk/sænsk samframleiðsla. Meðframleiðendur eru Katrin Pors, Mikkel Jersin og Eva Jakobsen fyrir Snowglobe, Nima Yousefi fyrir Hobab og Anthony Muir fyrir Film i Väst.

Ljósmynd Maria von Hausswolff.

Með aðalhlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Mariu von Hausswolff og Julius Krebs Damsbo sér um klippingu myndarinnar. Hljóðhönnuður myndarinnar er Lars Halvorsen, leikmyndahönnuður Hulda Helgadóttir og tónlist er eftir Edmund Finnis. Með sölu og dreifingu erlendis fer New Europe Film Sales.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dönsku/íslensku Vetrabræðrum sem kom út árið 2017 og fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningu í aðalkeppni Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss í ágúst 2017, samkvæmt fréttatilkynningu.

Myndin hefur unnið til yfir þrjátíu alþjóðlegra verðlauna, þar af níu Robert verðlaun og tvenn Bodil verðlaun í Danmörku. Hlynur Pálmason vann einnig til Dreyer verðlaunanna á síðasta ári fyrir framúrskarandi listræna hæfni.

Fjórar íslenskar myndir hafa áður tekið þátt í Critics' Week, Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson vann til ferna verðlauna þegar hún tók þátt í fyrra; SACD verðlaunanna fyrir besta handrit (Benedikt Erlingsson og Ólafur Egilsson) sem veitt eru af samtökum handritshöfunda og tónskálda; Gyllta lestarteininn; áhorfendaverðlaun Valbonne; og skólaverðlaun kennara og nema. Þá vann Kona fer í stríð meðal annars til LUX verðlaunanna Evrópuþingsins og Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.

Aðrar íslenskar myndir sem hafa tekið þátt í Critics‘ Week eru; Ingaló eftir Ásdísi Thoroddsen árið 1992; hin norsk/íslenska Vandræðamaðurinn eftir Jens Lien árið 2006; og fransk/íslenska stuttmyndin Víkingar eftir Magali Magistry árið 2013.

Critics‘ Week var stofnuð árið 1961 af samtökum franskra kvikmyndagagnrýnenda. Á meðal þekktra leikstjóra sem hafa sýnt myndir sínar í Critics' Week eru t.a.m. Wong Kar-wai, Bernardo Bertolucci, Gaspar Noé og núverandi forseti dómnefndar í aðalkeppni Cannes, Alejandro González Iñárritu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson