Bandaríski kvikmyndaleikarinn og fyrrum ruðningsleikarinn O.J. Simpson, sem dæmdur var í 15 ára fangelsi árið 2008 fyrir mannrán og vopnað rán á hótelherbergi í Las Vegas, og hafði árið 1995 verið sýknaður af ákæru fyrir að myrða fyrrverandi eiginkonu sína og vin hennar, er kominn á Twitter.
Simpson stofnaði reikning sinn fyrir tveimur dögum og telja fylgjendur hans þegar hálfa milljón.
Á Twitter-aðgangnum hefur Simpson þegar deilt tveimur myndskeiðum. Þar segir hann fylgjendum sínum að til þessa hafi fólk getað látið hin ýmsu ummæli um hann falla án þess að þurfa að svara fyrir þau. Þann tíma segir Simpson liðinn.
Thanks to all my new followers. Love learning how to use Twitter. pic.twitter.com/J4JnN59yKl
— O.J. Simpson (@TheRealOJ32) 16 June 2019
Coming Soon!!! pic.twitter.com/R1tXOuuLgO
— O.J. Simpson (@TheRealOJ32) 15 June 2019