Kardashian hjálpar 5 þúsund föngum

Kim Kardashian talaði fyrir bættri aðstöðu fanga í Hvíta húsinu …
Kim Kardashian talaði fyrir bættri aðstöðu fanga í Hvíta húsinu fyrir helgi. AFP

Um 5 þúsund fangar munu njóta aðstoðar raunveruleikaþáttastjörnunnar Kim Kardashian þegar þeir losna úr fangelsi á næstu mánuðum. Kardashian hefur beitt sér fyrir að bæta aðstöðu fanga í Bandaríkjunum og kynnti hún á dögunum akstursþjónustu fyrir fyrrverandi fanga. 

Með akstursþjónustunni, sem Lyft mun annast, fá fyrrverandi fangar akstur endurgjaldlaust til þess að komast í atvinnuviðtöl. Þeir munu einnig geta nýtt þjónustuna endurgjaldslaust til að sækja alls konar þjónustu hjá hinu opinbera. 

Kardashian hefur unnið hörðum höndum síðustu mánuði að því að betrumbæta fangelsismál í Bandaríkjunum og frelsað hátt í 20 fanga. Hún hefur heimsótt fanga í fangelsi og menn sem nýlega hafa losnað úr fangelsum. Hún sagði í ræðu sinni í Hvíta húsinu fyrir helgi að margir hafi greint frá erfiðleikum við að komast í atvinnuviðtöl. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson