Gifta Turner og Jonas sig aftur um helgina?

Sophie Turner og Joe Jonas ætla að ganga aftur í …
Sophie Turner og Joe Jonas ætla að ganga aftur í það heilaga í Frakklandi. AFP

Það gengur illa hjá þeim Sophie Turner og Joe Jonas að halda brúðkaupsáætlunum fyrir sig og sína, en dr. Phil gaf óvart upp dagsetninguna á brúðkaupi þeirra á Instagram um helgina.

Við mynd sem Turner birti á laugardaginn síðasta skrifaði dr. Phil „Auðvelt héðan í frá! Aðeins ein vika! Sjáumst í brúðkaupinu!“

Athugasemd dr. Phil.
Athugasemd dr. Phil. skjáskot/Instagram

Það má því gera ráð fyrir að brúðkaupsveisla þeirra í Frakklandi fari fram um næstu helgi, 29. júní. Hjónakornin eru í það minnsta mætt til Parísar í Frakklandi, en Turner er nýkomin þangað frá Benidorm þar sem hún var í gæsunarferð með vinkonum sínum.

Turner og Jonas eru reyndar nú þegar gift en þau gengu í það heilaga í Las Vegas í maí. Þau ætluðu ekki að greina fjölmiðlum strax frá giftingunni, en einn vina þeirra, plötusnúðurinn Diplo, var í beinni útsendingu meðan á athöfninni stóð. 

Það var nauðsynlegt fyrir þau að gifta sig í heimalandi sínu, áður en þau héldu til Frakklands því að samkvæmt frönskum lögum hefur brúðkaup þar í landi ekki lagalegt gildi nema annað brúðhjónanna sé franskur ríkisborgari.

View this post on Instagram

🇫🇷 me 😏

A post shared by Sophie Turner (@sophiet) on Jun 22, 2019 at 11:46am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson