Hamingja að haldast í hendur

Marína Ósk heldur tónleika á fimmtudaginn næstkomandi.
Marína Ósk heldur tónleika á fimmtudaginn næstkomandi. Ljósmynd/Aðsend

„Ég leitast við að finna það sem veitir mér hamingju í lífinu og eitt af því sem veitir mér hamingju og kveikir í mér tónlistarlega er einfaldur tærleiki. Lagið fjallar um hversu vel mér líður þegar höndin mín fær að hvílast í hendi míns betri helmings og hvernig sú athöfn getur gert lífið einfalt - þó ekki sé nema í smástund,” segir söngkonan Marína Ósk.

Hún sendi nýverið frá sér nýtt lag sem ber nafnið „Meðan höndin mín í hendi þinni hvílir.“ Lagið er í söngvaskáldastíl og byrjar sem hlýlegt gítarpopplag sem þróast út í kraftmikið númer með trommum og kór sem drifinn er af tærri röddu Marínu. Lagið er hið fyrsta af væntanlegri breiðskífu sem kemur út í haust.

Á morgun, fimmtudag, mun Marína Ósk koma fram á Freyjujazzi í Listasafni Íslands klukkan 17:15. Á tónleikunum mun Marína flytja lög af væntanlegri plötu ásamt öðru frumsömdu efni í jözzuðum stíl. Meðleikarar verða þeir Mikael Máni Ásmundsson rafgítarleikari og Róbert Þórhallsson rafbassaleikari.

Marína Ósk leggur nú lokahönd á sína fyrstu plötu. Marína hefur einbeitt sér að jazznámi síðustu ár og á námsárum sínum í Amsterdam hóf hún að semja sína eigin tónlist. Tónlistin flokkast þó ekki undir hatt jazztónlistar sem slík en teygir sig frekar til stíls söngvaskálda þar sem einlægir textar og grípandi laglínur fléttast saman á lifandi hátt. 

Platan, sem kemur út í byrjun hausts 2019, ber heitið Athvarf og vísar til þess að tónlist hefur ávallt verið Marínu eins konar athvarf og griðastaður þar sem hægt er að hreiðra um sig og finna ró. Í gegnum textana liggur svo silfurþráður þar sem þessari tilfinningu er lýst á ólíkan hátt, oftar en ekki tengt veðurfari eða náttúrufyrirbærum, t.d. rigningu eða stormi, nótt eða morgni.  

Upptökur fóru fram í Sundlauginni í mars 2019 og voru styrktar af Hljóðritasjóði Rannís. Ásamt Marínu spila þeir Mikael Máni Ásmundsson og Ásgeir J. Ásgeirsson á rafgítar og kassagítar, Lito Mabjaia á rafbassa og Þorvaldur Halldórsson á trommur. Þær María Magnúsdóttir og Rakel Pálsdóttir sungu inn raddir, ásamt Marínu sjálfri. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson