Riverdale-parið Cole Sprouse og Lili Reinhart eru hætt saman að því fram kemur á vef ET. Fréttirnar af sambandsslitum leikaranna komu aðeins nokkrum dögum eftir að þau mættu á Comic-Con-hátíðina í New York ásamt samstarfsfólki.
Allt leit út fyrir að vera eðlilegt á milli þeirra Sprouse og Reinhart á hátíðinni þar sem þau sátu hlið við hlið á pallborðsumræðum. Sprouse og Reinhart voru í sama boðinu á laugardagskvöldið en voru þó ekki saman þar að sögn sjónarvotts.
Sprouse sem er 26 ára og Reinhart sem er 22 ára voru saman í tvö ár og leika saman í sjónvarpsþáttunum Riverdale. Þau töluðu lítið um samband sitt til þess að byrja með en það breyttist í fyrra.