Breska söngkonan Adele greindi frá því í apríl að hún væri hætt með eiginmanni sínum Simon Konecki. Nú hefur söngkonan formlega sótt um skilnað fimm mánuðum eftir að fréttirnar bárust. Adele sótti um skilnað í Los Angeles að því er fram kemur á vef TMZ.
Skilnaðurinn virðist vera í góðu, í það minnsta hefur talsmaður fjölskyldunnar gefið út að hjónin séu staðráðin í að ala son sinn upp saman. Adele, sem er 31 árs, ól soninn Angelo árið 2012. Hún giftist Konecki árið 2016 eftir að þau höfðu verið saman í fimm ár.
Ástæða skilnaðarins er óljós en heimildarmaður E! sagði í vor að hjónin hefðu einfaldlega þroskast hvort í sína áttina og frægð Adele spilaði þar inn í.