Ný þáttaröð af Venjulegu fólki mun líta dagsins ljós 16. október en allir þættirnir verða aðgengilegir á sama tíma í Sjónvarpi Símans Premium. Þeir voru frumsýndir í heild sinni á síðasta ári og sló þáttaröðin öll áhorfsmet hjá Símanum. Fylgst er með dramatíkinni sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna. Að upplifa frægð og frama er ekki bara dans á rósum heldur hefur það ófyrirséðar afleiðingar fyrir þær, fjölskyldu og vini.