Tökur á Eurovision-kvikmynd Will Ferrel eru í fullum gangi í Edinborg þessa dagana en líklegt er að tökur haldi áfram næstu helgi hér á Íslandi.
Ferrell og leikkonan Rachel McAdams sáust spígspora um stræti Edinborgar í síðustu viku og heimildir herma að þau verði þar út vikuna. Eurovision-myndin mun fjalla um söngkonu frá Íslandi sem tekur þátt í Eurovision og fer Rachel McAdams með aðalhlutverkið.
Auglýst hefur verið eftir aukaleikurum hjá Leikfélagi Húsavíkur og Eskimo Casting til þess að taka þátt í kvikmynd sem tekin verður upp í bænum daga 11. - 14. október næstkomandi og samkvæmt heimildum mbl.is er þar átt við Eurovision-myndina.
Það má því leiða líkur að því að Ferrel og McAdams heimsæki Ísland í lok vikunnar. Vel má vera að stórleikarinn Pierce Brosnan kíki við, en hann mun fara með hlutverk kærasta McAdams í myndinni. Tónlistarkonan Demi Lovato og Downton Abbey-stjarnan Dan Stevens eru líka orðuð við kvikmyndina svo mögulega koma þau einnig til landsins.