Hlaðvarpsþættirnir Nei? Ha! hefja göngu sína á mbl.is í dag. Í þætti dagsins segja þeir Gísli og Arnar sögur af rapparanum Snoop Dogg. Gísli er staddur hér heima á Íslandi en Arnar er staddur í Danmörku og nýta þeir sér tæknina til að taka upp þáttinn saman. Ein af sögunum af Bandaríkjamanninum er uppspuni en það er ekki erfitt að ljúga upp á hann, þar sem ýmislegt hefur komið fyrir hann á hans 48 ára löngu ævi.