Kardashian-systurnar mættu ásamt móður sinni, Kris Jenner, á People's Choice Awards á sunnudaginn. Kim Kardashian sem er án efa sú frægasta var á góðri leið með að fara að rífast við elstu systur sína, Kourtney Kardashian, í viðtali við E! á rauða dreglinum.
Eins og sjá má í viðtalinu hér að neðan var viðtalið mjög vandræðalegt og sérstaklega óþægilegt fyrir Kourtney Kardashian. Kourtney var spurð út í fatnað sinn en áður en hún náði að klára teygði Kim sig í míkrófóninn og byrjaði að auglýsa ilmvatnið sitt.
„Ég var að bjarga þér þar sem þú vissir ekki í hverju þú værir,“ sagði Kim á meðan Kourtney reyndi að koma einhverju frá sér sem heyrðist illa. Í lok umræðunnar um fötin reyndi hún að segja að hún hefði ekki kunnað að bera fram nafn merkisins sem hún væri í.
Spjallið hélt áfram í nokkrar mínútur en Kourtney virtist ekkert sérstaklega ánægð með systur sína, Kim Kardashain, sem virtist nýta tækifærið til þess að stela athyglinni.