Leitin að Jólastjörnunni hefst í Sjónvarpi Símans 21. nóvember þar sem 12 ungir söngsnillingar hefja upp raust sína fyrir framan dómnefnd. Sigurvegarinn mun svo standa á sviðinu á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins í Eldborg Hörpu 21. og 22. desember. Jólastjarnan 2019 á Sjónvarpi Símans.
Hér syngur Matthildur Sveinsdóttir, sem er 14 ára gömul, lagið Eitt sinn rétt fyrir jólin í Jólastjörnunni 2019.