Sækir um skilnað eftir tveggja ára hjónaband

Justin Hartley og Chrishell Stause saman í september.
Justin Hartley og Chrishell Stause saman í september. AFP

This is Us-stjarnan Just­in Hartley sótti um skilnað frá eiginkonu sinni, leikkonunni Chris­hell Stause, á dögunum að því er fram kemur á vef TMZ. Hartley og Stause giftu sig í lok október árið 2017 en eru sögð hafa hafa skilið að borði og sæng í byrjun júlí á þessu ári. Hjónin trúlofuðu sig árið 2016 eftir nokkurra ára samband og giftu sig rúmlega ári seinna. 

Ástæða skilnaðarins er sögð vera ósættanlegur ágreiningur. Þrátt fyrir að hafa skilið að borði og sæng í sumar hafa þau sést töluvert saman síðan. Þau mættu meðal annars saman á Emmy-verðlaunahátíðina í lok september og sáust saman í síðustu viku. 

Leikarinn vill ekki greiða framfærslu eiginkonu sinnar né lögfræðikostnað hennar. Hjónin eiga ekki barn saman svo það verður ekki vandamál í skilnaðardeilunni. Hartley á barn úr fyrra hjónabandi. 

Frægðarsól Hartley hef­ur risið hátt síðasta árið eða síðan sjón­varpsþætt­irn­ir This is Us voru frum­sýnd­ir. Stause varð meðal ann­ars þekkt fyr­ir leik sinn í banda­rísku sápuóper­unni Days of Our Li­ves og fyrir hlutverk sitt í Netflix-þáttunum Selling Sunset. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson