Khalid kemur fram í Laugardalshöll 2020

Khalid er væntanlegur til landsins.
Khalid er væntanlegur til landsins. AFP

Tónlistarmaðurinn Khalid mun troða upp í Laugardalshöllinni 25. ágúst næstkomandi. Khalid er einn allra heitasti tónlistamaður veraldar um þessar mundir og var nýlega titlaður einn áhrifamesti einstaklingur heims af Time 2019. 

Khalid sló fyrst í gegn með laginu Location árið 2016. Hann gaf út sína fyrstu plötu, American Teen, árið 2017 sem innihélt Location auk Young Dumb & Broke, sem einnig sló rækilega í gegn. Hann hefur síðan toppað vinsældalista um allan heim stanslaust og hlotið fimm Grammy-tilnefningar.

Khalid gaf út sína aðra plötu, Free Spirit, í apríl 2019 og varð í kjölfarið fyrsti listamaðurinn til að verma öll efstu fimm sæti Billboard R&B vinsældarlistans, auk þess sem platan skaust í toppsæti Billboard Top 100 og náði fljótt platínusölu. Khalid hefur gefið út lög í samstarfi við magnaða listamenn á borð við Ed Sheeran, Calvin Harris, Marshmello, Shawn Mendez, Billie Eilish, Major Lazer og Disclosure. 

Miðasala hefst 13. desember klukkan 12 á Tix.is en póstlistaforsala hefst 12. desember kl. 12. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson