Little Women-leikkonan Florence Pugh er í sambandi með hinum 44 ára gamla Scrubs-leikara Zach Braff. Sjálf er hún 21 ári yngri og virðist vera sama um aldursmuninn. Nýlega lét hún gagnrýnendur á samfélagsmiðlum heyra það.
Pugh birti mynd af sér fyrir framan veitingastað á samfélagsmiðlum og greindi frá því að súpan myndi laga flugþreytuna. Kærastinn birti prinsessutjákn við myndina og fékk fyrir það gagnrýni.
„Þú ert 44 ára,“ skrifaði hneykslaður netverji við athugasemd Braffs. Pugh kom þá kærastanum til varnar: „... og þrátt fyrir það er hann með'etta,“ skrifaði Pugh ánægð með gamla kærastann.
View this post on InstagramFirst pit-stop, Matzo Ball soup. #curingjetlag101
A post shared by Florence Pugh (@florencepugh) on Dec 27, 2019 at 10:39pm PST