Yfir níu þúsund miðar seldir á Níu líf

Bubbi hélt tónleika í Borgarleikhúsinu á laugardaginn, daginn sem miðasalan …
Bubbi hélt tónleika í Borgarleikhúsinu á laugardaginn, daginn sem miðasalan hófst. Ljósmynd/Aðsend

Yfir níu þúsund miðar hafa selst á söngleikinn Níu líf, sem fjallar um Bubba Morthens í tali og tónum, en miðasalan hófst á laugardaginn. Ólafur Egill Egilsson er höfundur verksins og leikstjóri sýningarinnar sem verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 13. mars.

„Við þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur. Við erum svo sannarlega í skýjunum yfir þeim,“ segir Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri. „Við hlökkum mikið til þess að setja magnaða sögu Bubba Morthens á svið og það gefur öllum hópnum aukinn kraft að finna fyrir áhuga á fólks á þessari sýningu.“

Í liðinni viku var fyrsta tóndæmið úr sýningunni frumflutt þegar ný útgáfa af einu vinsælasta lagi Bubba, Rómeó og Júlía, var gefið út. Það eru þau Rakel Björk Björnsdóttir og Aron Már Ólafsson sem syngja lagið og hljómsveit sýningarinnar undir stjórn tónlistarstjórans Guðmundar Óskars spilar undir.

Auk Rakelar Bjarkar og Arons Más leika í verkinu þau Björn Stefánsson, Esther Talia Casey, Halldóra Geirharðsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson og Valur Freyr Einarsson.

Listrænir stjórnendur auk Ólafs eru Ilmur Stefánsdóttir leikmyndahöfundur, Filippía I. Elísdóttir búningahöfundur, Björn Bergsteinn Guðmundsson, lýsing, og Gunnar Sigurbjörnsson, hljóð.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson