Kvikmyndahúsin Smárabíó og Háskólabíó munu loka um óákveðinn tíma frá og með morgundeginum, þriðjudeginum 24. mars. Lokunin mun vara á meðan samkomubann er í gildi.
Síðustu sýningar kvikmyndahúsanna eru klukkan 20 í kvöld. Í tilkynningu frá kvikmyndahúsunum segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin með velferð stafsfólks og viðskiptavina í huga.