Grínleikkonan Kathy Griffin var lögð inn á sjúkrahús og sett í einangrun. Grunur leikur á að hún sé með kórónuveiruna en einkenni hennar pössuðu við einkenni veirunnar. Hún hefur hins vegar ekki farið í sýnatöku.
Griffin, sem er 59 ára, birti mynd af sér í einangrunarherberginu á Instagram í gærkvöldi og vandaði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, ekki kveðjurnar. Við myndina hafði hún einnig sett skjáskot af færslu forsetans á Twitter þar sem hann fullvissaði fylgjendur sína um að Bandaríkin væru að standa sig vel í baráttunni við veiruna.
Ástæðan af hverju Griffin hefur ekki farið í sýnatöku segir hún vera vegna takmarkana sem Center for Disease Control hefur sett í Bandaríkjunum.
View this post on InstagramA post shared by Kathy Griffin (@kathygriffin) on Mar 25, 2020 at 12:52pm PDT