Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir býður öllum áhugasömum prjónurum þessa lands í saumaklúbb. Steinunn Ólína var með beina útsendingu frá saumaklúbb á facebooksíðu Kvennablaðsins á fimmtudagskvöld og býður fleira fólki að vera með næst.
Í saumaklúbbinn á fimmtudaginn mættu þær Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kristín Einarsdóttir. Þær Ólafía Hrönn og Kristín voru að prjóna en Steinunn Ólína saumaði út í gamlan kartöflupoka. Vinkonurnar töluðu mikið um handavinnu, íslenskan lopa og ástandið í heiminum.
„Við prófuðum að vera með saumó í beinni og ætlum að gera fleiri tilraunir. Eru einhverjir hér sem vilja vera memm næst?“ skrifar Steinunn Ólína í hópinn Handóðir prjónarar á Facebook. Innleggið fékk góð viðbrögð og margir til í að vera með.
Í spilaranum hér að neðan má horfa á streymið.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.