Fyrirsætan Sofia Richie og raunveruleikastjarnan Scott Disick virðast vera farin hvort í sína áttina ef marka má heimildir TMZ. Richie hefur dvalið heima hjá öðrum manni í Malibu í Los Angeles undanfarna þrjá daga og sögusagnir herma að maðurinn sé nýi kærasti hennar.
Disick og Richie hafa verið í sambandi í um þrjú ár en þó hætt nokkrum sinnum saman. Disick fór nýlega í meðferð við áfengis- og kókaínfíkn en þegar myndum af honum í meðferðinni var lekið í fjölmiðla fór hann í fússi frá meðferðarstöðinni.