Hver er nýja konan í lífi Brads Pitts?

Hver er nýja konan í lífi Brad Pitt?
Hver er nýja konan í lífi Brad Pitt? Samsett mynd

Stórleikarinn Brad Pitt er kominn með nýja kærustu. Sú heppna heitir Nicole Poturalski en þau sáust á ferðalagi í Suður-Frakklandi í vikunni. Poturalski er 27 ára gömul og því 29 árum yngri en Brad Pitt sem er 57 ára. Hún er fyrirsæta og frá Þýskalandi.

Samkvæmt heimildum UsWeekly er Poturalski þó ekki svo ný í lífi Pitts en þau sáust fara á stefnumót saman í nóvember síðastliðnum. Það eru þó ekki heimildir til fyrir því að þau hafi verið að hittast í leyni í þessa níu mánuði sem liðnir eru frá fyrsta stefnumótinu. 

Poturalski hefur skapað sér nafn í tískuheiminum og er á lista stórrar umboðsskrifstofu í Þýskalandi sem og í New York og Los Angeles. Hún hefur prýtt forsíðu hjá Harper's Bazaar, Grazia og Elle í Þýskalandi.

Poturalski sýnir ekki mikið frá sínu daglega lífi á samfélagsmiðlum. Samkvæmt heimildum UsWeekly er hún móðir og á einn son. Hún hefur sýnt hann lítillega á Instagram og birti mynd árið 2016 af sér og syni sínum. 

Poturalski er þýsk fyrirsæta.
Poturalski er þýsk fyrirsæta. Skjáskot/Instagram
Poturalski og Pitt sáust saman á leiðinni í frí í …
Poturalski og Pitt sáust saman á leiðinni í frí í vikunni. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson