„Sá glæsilegasti frá upphafi“

Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós.
Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós. mbl.is/Árni Sæberg

„Veturinn fram undan verður sá þéttasti og glæsilegasti frá upphafi,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós, um komandi starfsár. Lætur hann engan bilbug á sér finna þrátt fyrir kófið sem haft hefur veruleg áhrif á menningarlífið hérlendis síðustu mánuði.

„Við vorum búin að auglýsa eftir og velja margt gott úr innsendum umsóknum áður en kófið brast á og ljóst var að nokkur verkefni síðasta vors myndu færast til næsta leikárs,“ segir Friðrik og tekur fram að skipulagsbreytingar innanhúss hafi opnað fyrir að hægt væri að sýna fleiri verk en áður á einum vetri. „Við höfum þannig stytt æfingatímann inni á sviðinu sjálfu örlítið, en lengt hann í staðinn í æfingarýminu,“ segir Friðrik og tekur fram að skipulagið sé vissulega háð því að kófið valdi ekki enn meiri röskun en orðið er.

Friðrik bendir á að venju samkvæmt sé áhersla lögð á ný íslensk verk auk þess sem markmiðið sé að bjóða upp á mikla breidd með verkum sem spanna allt frá hefðbundnari listformum til nýrra forma. „Á komandi leikári verða alls 18 verk frumsýnd, þar af 17 ný verk,“ segir Friðrik og bendir á að allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, því í vetur verður boðið upp á fimm barnaverk, fimm leikrit, þrjú dansverk, tvö spunaverk, tvö óperuverk og eitt sirkusverk.

Treysta á stuðning borgarinnar

„Leikárið hófst í raun í byrjun ágúst með kynsegin sviðsuppfærslu á ljóðabálkinum Malarastúlkunni fögru eftir Franz Schubert við ljóð Wilhelms Müllers. Þar skoðuðu tenórinn Sveinn Dúa Hjörleifsson og leikstjórinn Gréta Kristín Ómarsdóttir bálkinn í ljósi sjálfsuppgötvunar og kyntjáningar,“ segir Friðrik og tekur fram að vegna samkomutakmarkana hafi aðeins örfáir miðar verið í boði og því sé ánægjulegt að geta boðið upp á aukasýningu 5. september.

„Meðan tveggja metra reglan er í gildi höfum við aðeins getað selt 40-50 miða í 180 manna sal, sem þýðir um 20-25% sætanýtingu sem gengur auðvitað ekki upp til lengdar í ljósi þess að miðasölutekjur standa undir 60% af rekstrinum,“ segir Friðrik og bendir á að vegna kófsins hafi Reykjavíkurborg í vor sem leið fært fjármuni frá haustinu til vorsins til að bjarga málum tímabundið. „Við bindum vonir við að borgin leggi okkur lið fjárhagslega ef kófið setur aftur strik í reikninginn.“

Verk um stöðu flóttabarna

Næsta frumsýning verður í dag, laugardag, þegar barnasýningin Tréð eftir Agnesi Wild og Söru Martí í leikstjórn höfundar verður frumsýnd. „Þetta er mjög fallegt verk úr smiðju Lalalab, unnið í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, sem fjallar á myndrænan hátt um veruleika og stöðu flóttabarna,“ segir Friðrik og bendir á að tveir leikarar miðla sögunni með aðstoð myndvarpa og um 200 brúður úr smiðju Elínar Elísabetar Einarsdóttur.

Á morgun, sunnudag, er frumsýnd óperan Ekkert er sorglegra en manneskjan eftir tónskáldið Friðrik Margrétar-Guðmundsson við texta Adolfs Smára Unnarssonar sem jafnframt leikstýrir. „Þetta er flottur hópur nýútskrifaðra listamanna af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands. Þetta er metnaðarfullt, spennandi og flott verk sem fjallar um fjórar fígúrur sem ráfa um á sviði í leit að merkingu. Þau eru að hluta innblásin af skrifum Dantes um helvíti og limbóinu milli heimanna tveggja,“ segir Friðrik og bendir á að sýningartíminn verði knappur þar sem þátttakendur séu á leið í framhaldsnám erlendis.

Um miðjan september hefjast á ný sýningar leikhópsins Reykjavík Ensemble á Polishing Iceland eftir Ewu Marcinek í leikstjórn Pálínu Jónsdóttur. „Þau rétt náðu að frumsýna þessa sýningu í mars en svo kom samkomubann og skellt var í lás. Þetta er flott sýning sem fjallar um unga konu sem flýr ákveðið ástand í Póllandi og reynir að fóta sig í skrýtnu umhverfi hérlendis,“ segir Friðrik og tekur fram að sýningin tali jafnt til Íslendinga og Pólverja. „Sýningin er leikin á pólsku, íslensku og ensku,“ segir Friðrik.

Kvennatvíleikur um Sunnefu

Lalli og töframaðurinn nefnist sýning sem frumsýnd verður 26. september. „Þetta er hugsað sem fræðandi, töfrandi en umfram allt skemmtileg fjölskyldusýning sem veitir einstaka innsýn í leyndarmál og töfra leikhússins,“ segir Friðrik. Höfundar verksins eru Lárus Blöndal Guðjónsson og Ari Freyr Ísfeld Óskarsson, sem jafnframt leikstýrir.

Sunnefa nefnist verk eftir Árna Friðriksson í samstarfi við leikhópinn Svipi í leikstjórn Þórs Tulinius sem frumsýnt verður 10. október. „Um er að ræða kvennatvíleik þar sem leikkonurnar Tinna Sverrisdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir, betur þekkt sem Fabúla, segja sögu Sunnefu Jónsdóttur sem tvívegis var dæmd til drekkingar snemma á 18. öld,“ segir Friðrik og rifjar upp að Sunnefa var sögð hafa eignast börn með yngri bróður sínum fyrst þegar hún var 16 ára og síðan 18 ára. Á Þingvöllum 1743 neitaði hún hins vegar sök og sagði að faðir seinna barnsins væri sýslumaðurinn sem dæmdi hana til dauða. „Þau frumsýna verkið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum nú í september og koma síðan suður til að sýna,“ segir Friðrik.

Co za poroniony pomysł sem þýða mætti sem Úff, hvað þetta er slæm hugmynd! nefnist sýning eftir Jakub Ziemann, Aleksöndru Skolozynska og Ólaf Ásgeirsson sem frumsýnd verður 15. október. „Jakub er kokkur á veitingastaðnum Skál, Aleksandra er spunaleikkona frá Varsjá og Ólafur er íslenskur leikari sem er að læra pólsku á duolingo. Þau munu sameina krafta sína á sviði Tjarnarbíós og búa til skemmtilega kvöldstund á pólsku,“ segir Friðrik og tekur fram að sérlega ánægjulegt sé að geta sinnt þeim mikla fjölda Pólverja sem hér búa og starfa.

Verk Nr. 2 eftir Steinunni Ketilsdóttur verður frumsýnt á Reykjavík Dance Festival í haust. „Um er að ræða þriðja verkið í röð verka sem spretta upp af rannsóknarverkefninu „Expressions: the power and politics of expectations in dance“ sem Steinunn leiðir í samstarfi við hóp lista- og fræðimanna,“ segir Friðrik og bendir á að Steinunn sé einnig höfundur dansverksins Practice Performed sem sýnt verði á Vorblóti Tjarnarbíós vorið 2021 og einnig tengist fyrrnefndu rannsóknarverkefni. „Practice Performed er dansverk sem skapað er í rauntíma,“ segir Friðrik og bendir á að vegna kófsins hafi Vorblótið fallið niður síðasta vor en ráðgert var að frumsýna Verk Nr. 2 á því.

Jólaævintýri Þorra og Þuru eftir Agnesi Wild og Sigrúnu Harðardóttur í leikstjórn Söru Martí Guðmundsdóttur verður tekið aftur til sýningar frá og með 29. nóvember, en sýningin var frumsýnd í Tjarnarbíói fyrir síðustu jól. „Svo skemmtilega vill til að jólaálfarnir Þorri og Þura verða einnig á dagskrá RÚV fyrir jólin,“ segir Friðrik og tekur fram að Þorri og Þura sé nýja jólasýning Tjarnarbíós eftir að Felix Bergsson lagði Ævintýrinu um Augastein endanlega.

Spunahópurinn Svanurinn sýnir jólasýningu sína 17. og 18. desember. „Þetta er sjötta árið í röð sem Svanurinn stendur fyrir jólasýningu. Fyrir marga er þetta orðinn fastur hluti af aðventunni,“ segir Friðrik, en meðal meðlima Svansins eru Adolf Smári Unnarsson, Guðmundur Felixson og Pálmi Freyr Hauksson.

Reyna að bjarga heiminum

Fyrsta frumsýning á nýju ári verður uppfærsla Leikhópsins Lottu á Mjallhvíti eftir Önnu Bergljótu Thorarensen. „Verkið byggist á hinni klassísku sögu um prinsessuna fögru sem flýr stjúpmóður sína og leitar skjóls hjá dvergum. Eins og Lottu er von og vísa er sagan þó nokkuð breytt og mega aðdáendur Lottu jafnvel búast við einhverjum uppfærslum á tíu ára gömlu sýningunni,“ segir Friðrik og bendir á að sýningar Lottu séu þær fjölsóttustu í Tjarnarbíói. Tekur hann fram að Lotta muni að vanda ferðast um landið með Mjallhvíti.

Lokasýningin nefnist nýjasta afurð Sóma þjóðar sem frumsýnd verður í febrúar. „Sómi þjóðar eru Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson sem hér í húsinu hafa meðal annars sett upp SOL og MP5,“ segir Friðrik og tekur fram að uppgangur fasismans og yfirvofandi heimsendir sé til umfjöllunar í nýjustu sýningu hópsins. „Í Lokasýningu ætla fimm listamenn Sóma þjóðar að bjarga heiminum á einni kvöldstund, í einni örvæntingarfullri atrennu, með öllum tiltækum ráðum,“ segir Friðrik leyndardómsfullur.

Annað dómsdagsverk er uppfærsla leikhópsins Tabúla Rasa á The Last kvöldmáltíð eftir Kolfinnu Nikulásdóttur í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur sem frumsýnd verður vorið 2021. „Verkið gerist í heimsendaástandi þar sem síðasta fjölskyldan sem eftir er í Reykjavík heldur mikilfenglega veislu í yfirgefinni sundlaug í tilefni af 17. júní. Þrátt fyrir að heimurinn sé við það að farast er fjölskyldan staðráðin í að heiðra gamlar hefðir samfélagsins sem þau eitt sinn tilheyrðu.“

Haukur og Lilja nefnist nýtt leikverk eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur sem frumsýnt verður næsta vor. Með titilhlutverkin fara Edda Björg Eyjólfsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. „Þetta var upphaflega stutt útvarpsverk sem er nú verið að þróa fyrir svið með spennandi hætti,“ segir Friðrik.

Tengsl mannsins við veðrið

Rof o.s.frv. nefnist nýtt dansverk eftir Ingu Huld Hákonardóttur sem frumsýnt verður á Vorblóti Tjarnarbíós vorið 2021. „Þetta er verk sem skoðar ótta, þrá og skáldskap í sambandi við óvissu í hreyfingu og hljóði,“ segir Friðrik.

Manndýr nefnist þátttökusýning eftir Aude Busson fyrir fjölskylduna sem frumsýnd verður í haust fyrir skólabörn en tekin til almennra sýninga næsta vor. „Verkið sækir innblástur í söguna L'enfant eftir Colas Gutman. Þar fer ungur strákur í sveitaferð með foreldrum sínum og týnist. Í framhaldinu hittir strákurinn kind sem spyr hann hvers konar dýr hann sé og hvaða tilgangi hann þjóni, sem setur strákinn í djúpa tilvistarkreppu.“

Síðasta frumsýning vorsins verður á Allra veðra von í uppfærslu sirkuslistahópsins Hringleiks og leikstjórn Agnesar Wild, en sýningin er unnin í samstarfi við Miðnætti leikhús. „Í uppfærslunni er sirkuslistin notuð til að skoða tengsl mannsins við veðrið,“ segir Friðrik og bendir á að góð lofthæð í Tjarnarbíói henti vel fyrir sirkussýningar. „Hópurinn hyggst í framhaldinu sýna verkið víðs vegar um landið næsta sumar.“

Framsækni að leiðarljósi

Í kynningarefni frá Tjarnarbíói er sérstök athygli vakin á því að ríflega 60% leikstjóra eru konur eða 11 af 18 leikstjórum og að kynjaskipting annarra aðstandenda sýninga sé nokkuð jöfn. Helmingur sýninga leikársins er saminn af konum, fimm af körlum og fjórar af blönduðum hópum. Á síðustu árum hefur hlutfall kynjanna í hópi leikstjóra og höfunda verið hvað jafnast hjá sjálfstæðu senunni og því liggur beint við að spyrja Friðrik hvort það hafi verið meðvituð ákvörðun þegar valnefnd Tjarnarbíós velur sýningar inn í húsið. „Ef við sæjum að það hallaði verulega á annað kynið í verkefnunum myndum við bregðast við því, en við höfum enn ekki þurft þess,“ segir Friðrik og bendir á að flestar þeirra sýninga sem sótt er um að fá að sýna í Tjarnarbíói hafi áður fengið umfjöllun hjá sviðslistaráði, áður leiklistarráði, vegna styrkumsóknar. Við úthlutun opinbers fjár eru kynjagleraugun sett upp, sem aftur hefur áhrif á þær umsóknir sem við fáum,“ segir Friðrik og bætir við: „Í vali okkar á verkefnum horfum við fyrst og fremst til áhorfendahópsins, þ.e. hverjum við erum að sinna, og fjölbreytni sviðsverka með framsækni að leiðarljósi,“ segir Friðrik og tekur fram að auk þess hafi áherslan alltaf verið mikil á frumsköpun. Allar nánari upplýsingar um sýningar ársins og kortasölu eru á tjarnarbio.is.

Viðtalið við Friðrik birtist fyrst í Morgunblaðinu fimmtudaginn 3. september. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren