Sænska leikkonan Maud Hansson Fissoun er látin 82 ára að aldri. Hún var hvað þekktust hér á Íslandi fyrir að fara með hlutverk vinnukonunnar Línu í myndunum um Emil í Kattholti.
Hansson Fissoun lést 1. október síðastliðinn en ekki var greint frá andláti hennar fyrr en í gær.
Á heimsvísu var hún best þekkt fyrir að leika í myndinni Sjunde insiglet sem á ensku hét The Seventh Seal sem Ingmar Bergman leikstýrði.