Bandaríska söngkonan Leann Rimes situr nakin fyrir og sýnir psoriasis-húðsjúkdóm sinn. Rimes hefur lengi glímt við húsjúkdóminn og er oftar en ekki þakin rauðum útbrotum en psoriasis er bólgusjúkdómur í húð sem getur brotist fram hvenær sem er á lífsleiðinni.
Hún segist vilja draga fram í dagsljósið allt í lífi sínu sem hún hefur hingað til falið. „Tónlistin er gjöfin til mín og ástæða þess að ég er hér. En mig langar einnig til þess að veita öðrum hlutum rödd. Margir eru að glíma við þennan húðsjúkdóm og nú er loks komið að mér að vera hreinskilin og sýna hvað psoriasis er og hvernig það lítur út,“ segir Rimes.
View this post on InstagramA post shared by LeAnn Rimes Cibrian (@leannrimes) on Oct 29, 2020 at 9:23am PDT