Jólalag Baggalúts komið út

Jólalag Baggalúts er komið út.
Jólalag Baggalúts er komið út. mbl.is

Baggalútur sendir frá sér nýtt, hugheilt jólalag innblásið af yfirstandandi heimsfaraldri. Í texta lagsins kemur fram einlæg ósk um að þrátt fyrir allt getum við haldið jól, með lágmarks sprittun og grímunotkun — og engum fjarlægðartakmörkunum á sjálfan jólaboðskapinn.

Baggalútur sendi nýlega frá sér plötu. Platan heitir Kveðju skilað og inniheldur ný lög eftir Braga Valdimar Skúlason við vísur og kvæði vestur–íslenska skáldsins Káins (1860–1936).

Kveðju skilað er komin út á streymisveitum og á geisladisk. En hún verður einnig fáanleg á vínyl–útgáfu þann 10. desember. Mun hún auk nýju laganna innihalda valin lög af hljómplötunni Sólskinið í Dakota, sem kom út á geisladiski árið 2009.  

Platan fæst í verslunum Pennans, Lucky Records, Reykjavík Recordshop, Smekkleysu, 12 Tónum, Heimkaupum, á Plötubúðin.is og í vefverslun Öldu Music en þar er einnig hægt að forpanta vínyl útgáfuna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson