Carl Philip Svíaprins og Sofia prinsessa hafa greinst með Covid-19 og eru í sóttkví. Þau eru sögð með mild einkenni og eru heima í sóttkví ásamt sonunum Alexander og Gabríel. Þetta kemur fram í Expressen.se.
Þá þurfa aðrir meðlimir konungsfjölskyldunnar, Karl Gústaf XVI Svíakóngur, Silvía drottning, Viktoría krónprinsessa og Daníel prins, að undirgangast Covid-próf. Fjölskyldan hafði komið saman fyrir viku til þess að vera viðstödd jarðarför bróður Silvíu drottningar.