Tileinkar myndina látinni dóttur

Leikstjórinn Thomas Vinterberg.
Leikstjórinn Thomas Vinterberg. AFP

Thomas Vinterberg, einn þekktasti og virtasti leikstjóri Danmerkur, er hinn vinalegasti þar sem hann situr heima hjá sér og svarar spurningum blaðamanna af ólíkum þjóðernum á Zoom, rúmum sólarhring fyrir afhendingu Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna, EFA. Þau voru veitt á laugardaginn var og hlaut kvikmynd Vinterbergs, Druk eða Drykkja, fern verðlaun, þ.e. sem besta evrópska kvikmyndin, fyrir bestu leikstjórn, besta handrit og besta leikara í aðalhlutverki, Mads Mikkelsen. Var Druk því óumdeildur sigurvegari hátíðarinnar sem fram fór á netinu vegna Covid-19.

Í Druk segir af fjórum miðaldra vinum og menntaskólakennurum sem ákveða að sannreyna þá heldur vafasömu kenningu að þeim muni farnast betur í lífinu séu þeir alltaf með örlítið magn áfengis í blóðinu. Kenndir, eins og sumir myndu lýsa því. Tilraunin hefur ýmsar viðbúnar en líka óvæntar afleiðingar og uppgötva félagarnir nýjar hliðar á sjálfum sér og tilverunni.

Mads Mikkelsen í Druk. Hann hlaut EFA sem besti leikarinn …
Mads Mikkelsen í Druk. Hann hlaut EFA sem besti leikarinn um nýliðna helgi.

Hlaðborð fara úr böndunum

Halda mætti af þessari lýsingu að Druk sé gamanmynd en svo er ekki, hún er öllu dýpri. Vinterberg segir að upphaflega hafi hún átt að vera lofgjörð um áfengi og neyslu þess, ekki umfjöllun um þann skaðvald sem áfengi getur verið. Þeir Tobias Lindholm, maðurinn sem skrifaði handrit myndarinnar með honum, hafi þó gert sér grein fyrir að þeim bæri siðferðisleg skylda til að fjalla um vímugjafann sem skaðvald.

Ofanritaður spyr Vinterberg að því hvað honum þyki um danska drykkjumenningu en hún hefur verið gagnrýnd fyrir að vera heldur frjálsleg og Danir mikið gefnir fyrir sopann. „Eins og þið Íslendingar þekkið fara jólahlaðborð gjarnan úr böndunum,“ svarar Vinterberg sposkur og bætir við að hann sé bara stoltur af drykkjumenningu þjóðar sinnar. Nú hváir blaðakona af óþekktu þjóðerni og biður leikstjórann um frekari skýringar á þessum ummælum. „Myndin er ekki bara um drykkju heldur líka hið óstjórnlega, að fara úr herbergi sjálfsstjórnarinnar yfir í herbergi hins illstýranlega, yfir í „hitt“ ástandið,“ segir Vinterberg. Eiginkona hans, sem er prestur, líki þeirri óstjórn við ástina og ástin verður seint tamin, eins og alkunna er.

„Allt er mælt á okkar tímum, hversu marga smelli greinarnar ykkar fá á netinu og símarnir okkar mæla hvað við tökum mörg skref. Við þurfum meira að segja að skipuleggja nám barnanna okkar langt fram í tímann,“ heldur Vinterberg áfram og segir löndum sínum til varnar að þeir séu almennt vel skipulagðir og með ágæta sjálfsstjórn. Því sé fyrrnefnd óstjórn áfengisvímunnar varla svo slæm.

Aldavinir

Vinterberg og aðalleikari myndarinnar, Mads Mikkelsen, hafa oft unnið saman með góðum árangri og má sem dæmi hefna hina frábæru kvikmynd Jagten. Segir leikstjórinn að Mads sé góður vinur hans líkt og aðrir aðalleikarar myndarinnar. „Mads treystir mér,“ segir Vinterberg og það hafi komið sér vel því efni myndarinnar sé viðkvæmt. „Við skiljum hvor annan fullkomlega,“ segir hann um Mikkelsen og bendir á hið augljósa, að bæði hann og aðalleikararnir fjórir þekki vel af eigin reynslu hvernig er að vera miðaldra karl í Danmörku.

Druk fjallar um fjóra einmana karla sem eru fastir í endurtekningu og meðalmennsku. Þeir ákveða að stökkva saman fram af bjargbrúninni sem styrkir vinaböndin,“ segir Vinterberg. „Við erum föst í hefðum og endurtekningum,“ endurtekur hann og að ekki þurfi endilega áfengi til að losna úr þeim hlekkjum.

Hér má sjá stiklu Druk:

Umvafinn kærleika

Vinterberg minntist fyrr í viðtalinu á að dóttir hans, Ida, hefði látið lífið í bílslysi skömmu eftir að tökur á kvikmyndinni hófust í fyrra, aðeins 19 ára að aldri og ofanritaður spyr hvaða áhrif sá skelfilegi atburður og sorgarferlið sem honum fylgdi hafi haft á tökur myndarinnar. Vinterberg segir að dóttur hans hafi þótt afar vænt um leikarana og fleiri sem komu að gerð myndarinnar og að Lindholm hafi í fyrstu leyst hann af. Eftir að sálfræðingur ráðlagði Vinterberg að halda áfram að leikstýra tók hann við keflinu af Lindholm og segir tökuliðið hafa umvafið hann hlýju og borið á herðum sér. „Ef þú finnur fyrir ást og kærleik í myndinni er það þeim að þakka og ef þú hlærð að einhverju er það leikurunum að þakka því þeir voru að reyna að fá mig til að hlæja,“ segir Vinterberg einlægur.

Hann segir Idu hafa sent honum bréf skömmu áður en tökur hófust þar sem hún sagðist afar stolt af verkefninu en Ida átti að leika í myndinni og aðstoðaði föður sinn við ýmislegt fram að tökum. „Druk er tileinkuð Idu og minningu hennar og er lofgjörð til lífsins í stað þess að vera kjánaleg mynd um drukkna, miðaldra karla,“ segir Vinterberg.

Ekkert áfengi á tökustað

Leikstjórinn er spurður út í samstarf þeirra Lindholms og segir hann þá hafa talað mikið saman áður en handritsskrifin hófust. „Það var erfitt að finna söguna, við áttum óteljandi fundi með Diet-Coke við höndina. Okkur tókst ekki að finna söguna fyrr en við rákumst á þessa kenningu eða hugmynd um áfengisprósentuna. Þá breyttum við aðalpersónunum í menntaskólakennara og boltinn fór að rúlla,“ útskýrir Vinterberg.

Nú spyr einn blaðamanna hvort um „method acting“ hafi verið að ræða hjá leikurum og á þar væntanlega við hvort þeir hafi verið undir áhrifum áfengis við tökur. „Ég var að bíða eftir þessari spurningu,“ svarar Vinterberg kíminn. „Nei, það var ekkert áfengi á tökustað og við þurftum að vinna í 12 klukkustundir á dag. Leikararnir áttu líka að leika, þeir áttu að þykjast vera fullir,“ segir Vinterberg og bætir við að fyrir tökur hafi aðalleikararnir farið í „alkóhólsæfingabúðir“, æft sig bæði í því í að leika og drekka. Í þeim búðum var áfengi vissulega haft um hönd, segir leikstjórinn, en ítrekar að leiklist sé alltaf í eðli sínu þykjustuleikur. Hann bætir við að þegar ákveðið magn áfengis sé komið í blóðið eigi leikarar erfitt með að halda jafnvægi, verði bara kjánalegir og hætt við að þeir slasi sig. Þá þurfi að kalla til áhættuleikara sem sé auðvitað ómögulegt og alltof mikið vesen. Nú þykir íslenskum blaðamanni erfitt að greina hvort Vinterberg er að spauga eða ekki.

Þýðir ekkert að berjast við streymisveiturnar

Leikstjórinn er spurður að því hvort hann myndi taka að sér að leikstýra kvikmynd eða sjónvarpsþáttum fyrir streymisveitu. Jú, hann segist alveg til í það. „Það þarf enga uppreisn gegn streymisveitunum heldur ber að fagna þeim sem nýjum sýningarvettvangi,“ segir Vinterberg og að hanni hafi fulla trú á því að bíóin lifi kófið af. Valið sé á endanum fólksins og það muni streyma aftur í bíóin þar sem bíóferð sé í eðli sínu félagsleg athöfn.

Vinterberg er að lokum spurður að því hvers vegna svo margar vandaðar kvikmyndir hafi komið frá Danmörku allt frá því Dogma-hreyfingin fór að unga út sínum merku afkvæmum undir lok síðustu aldar. „Af því við drekkum svo mikið,“ svarar Vinterberg glottandi en skiptir svo yfir í alvarlega gírinn. „Kvikmyndagerð hefur hlotið góðan stuðning frá ríkinu og kvikmyndaskólinn okkar var líka góður,“ segir hann um þennan glæsta árangur Dana í kvikmyndagerð það sem af er öldinni. Stuðningur við listir sé einkar mikilvægur.

Dönsk sigurmynd á EFA-hátíðinni í Berlín

Vegna Covid-19 voru Evrópsku kvikmyndaverðlaunin afhent í beinni netútsendingu frá Berlín en ekki í Hörpu eins og til stóð. Verða verðlaunin afhent hér á landi eftir tvö ár. Líkt og greint er frá í viðtalinu við Thomas Vinterberg hlaut danska myndin Druk eða Drykkja flest verðlaun eða fern alls, þar af fyrir bestu kvikmynd, besta leikstjóra (Vinterberg), besta handrit (Vinterberg og Tobias Lindholm) og besta leikara (Mads Mikkelsen).
Paula Beer í Undine.
Paula Beer í Undine.

Besta heimildarmyndin þótti Colectiv frá Rúmeníu og hin þýska Paula Beer hlaut verðlaun sem besta leikkonan fyrir Undine. Uppgötvun ársins þótti ítalski leikstjórinn og handritshöfundurinn Carlo Sironi fyrir kvikmynd sína Sole og verðlaun EFA fyrir hugmyndaríka frásagnarlist hlaut Írinn Mark Cousins fyrir heimildarmyndina Women Make Film: A New Road Movie Through Cinema. Besta evrópska gamanmyndin þótti hin franska Un triomphe eftir Emmanuel Courcol og besta teiknimyndin hin fransk-belgíska Josep eftir leikstjórann Aurel. Verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku hlaut Ítalinn Matteo Cocco fyrir Volevo nascondermi og verðlaun fyrir bestu klippingu hlaut annar Ítali, Maria Fantastica Valmori, fyrir Il Varco. Verðlaun fyrir bestu búningahönnun hlaut Þjóðverjinn Ursula Patzak fyrir Volevo nascondermi og fyrir bestu frumsömdu tónlist hlaut verðlaun hin rússneska Dascha Dauenhauer fyrir þýsk-hollensku myndina Berlin Alexanderplatz. Fyrir bestu hljóðupptöku hlaut Yolande Decarsin verðlaun fyrir Petite fille og fyrir bestu tæknibrellur Iñaki Madariaga fyrir hrollvekjuna El hoyo.

Heildarlista verðlauna og frekari upplýsingar má finna á europeanfilmawards.eu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson