Jónas Sig. og hljómsveit koma fram með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hofi annað kvöld, 18. september. Tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Þórður Magnússon hefur unnið með Jónasi og hljómsveit að sinfónískum útsetningum á vel völdum lögum Jónasar auk nýs efnis og verður afraksturinn hljóðritaður til útgáfu á tónleikunum.
Jónas leikur á gítar og syngur og með honum í hljómsveitinni verða Ómar Guðjónsson á gítar, Guðni Finnsson á bassa, Tómas Jónsson á hljómborð, Arnar Þór Gíslason á trommur og Rakel Sigurðardóttir og Steingrímur Teague syngja með Jónasi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.