Hætt saman í allra síðasta skipti

Aaron Rodgers og Shailene Woodley eru hætt saman í síðasta …
Aaron Rodgers og Shailene Woodley eru hætt saman í síðasta skipti. Samsett mynd

Leikkonan Shailene Woodley og NFL-stjarnan Aaron Rodgers eru hætt saman í allra síðasta skipti. Parið sleit trúlofun sinni í febrúar síðastliðinn en tók aftur upp þráðinn nokkrum vikum seinna. 

Nú segir heimildamaður E! News að þau séu hætt saman í síðasta skipti og muni ekki byrja aftur saman. „Shailene reyndi að gefa þeim aðra tilraun og eyddi tíma með Aaron. En hún komst fljótt að því að allt var á hans forsendum og að ekkert myndi breytast. Það var enginn tilgangur til að halda áfram og nú er hún búin að loka þessum kafla,“ sagði heimildamaðurinn.

Annar heimildamaður sagði E! News í febrúar að Woodley og Rodgers hafi hætt saman í góðu, þau væru vinir og styddu hvort annað. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson