Meghan heiðraði minningu barnanna í Uvalde

Meghan hertogaynja veitir látnum virðingu sína við minnisvarðann í Uvalde …
Meghan hertogaynja veitir látnum virðingu sína við minnisvarðann í Uvalde í Texas. AFP/ChandanKhanna

Meghan hertogaynja af Sussex lagði leið sína til til Texas-ríkis í Bandaríkjunum til að heiðra minningu þeirra sem féllu í skotárás í barnaskóla í Uvalde á þriðjudag.

Nítján börn létust í árásinni og tveir kennarar. Meghan fór að minnisvarðanum við ráðhúsið í Uvalde þar sem hvítum krossum hefur verið komið fyrir.

Meghan lagði hvítar rósir við kross eins nemanda sem lést í árásinni. Fór hún til Texas sem móðir, en ekki í opinberum erindagjörðum, til að votta fjölskyldum fórnarlambanna samúð.

Meghan á tvö börn með Harry Bretaprins. Þau sögðu skilið við störf sín innan bresku konungsfjölskyldunnar fyrir tveimur árum og fluttu til Bandaríkjanna. Nú eru þau búsett í Kaliforníu. 

Meghan lagði hvítar rósir við kross eins látins nemanda.
Meghan lagði hvítar rósir við kross eins látins nemanda. AFP/ChandanKhanna
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes