Báru samtímis upp bónorðið

Rita Ora og Taika Wai­titi byrjuðu saman í mars á …
Rita Ora og Taika Wai­titi byrjuðu saman í mars á síðasta ári. AFP

Ofurparið Rita Ora og Taika Waititi eru sögð hafa trúlofað sig með óformlegum hætti á dögunum og séu á fullu að skipuleggja brúðkaup. 

Samkvæmt heimildum fréttamiðilsins The Sun hyggst parið gifta sig á næstu misserum þegar vinnutörn þeirra er að mestu lokið. „Það er enginn hringur eða aðrar fyrirhafnir,“ er haft eftir heimildarmanni parsins. 

„Þetta snýst bara um að þau eru ástfangin og hafa ákveðið að nú sé rétti tíminn til að innsigla ástina. Þau gætu ekki verið hamingjusamari,“ sagði heimildarmaðurinn jafnframt en samkvæmt orðum hans bar parið upp bónorðið á sama tíma.

„Þau sögðu nánast samtímis að þau langaði að giftast hvort öðru.“ 

Opinber tilkynning um trúlofun hefur ekki borist frá parinu en heimildarmaðurinn fullyrti að það væru aðeins örfá smáatriði útistandandi og að það væri ekki langt í brúðkaupið. Parið er sagt vilja hafa brúðkaupið með lágstemmdri athöfn á framandi slóðum.

Hugir Ritu Ora og Taika Waititi féllu saman í lok ársins 2020 en þau gerðu samband sitt opinbert í mars 2021. Parið hefur undanfarið varið miklum tíma saman í Ástralíu þar sem það hefur dvalið vegna vinnu sinnar við ýmis konar verkefni. Sökum þess hafi umræður um að festa ráðahaginn sprottið upp.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes