Fá átta milljónir í verðlaunafé

Úrslit Love Island voru í gær.
Úrslit Love Island voru í gær.

Ekin-Su Culculoglu og Davide Sanclimenti voru krýnd sigurvegarar áttundu þáttaraðar Love Island í gær, mánudag. Parið hlýtur 50 þúsund sterlingspund í sigurlaun, en það eru um átta milljónir íslenskra króna. 

Bæði sögðust þau varla trúa því að hafa unnið þættina og lýstu upplifun sinni af þáttunum sem draumi. Ekin-Su er leikkona og fyrirsæta frá Essex en Davide rekur sitt eigið fyrirtæki í Róm á Ítalíu. 

Úrslitin voru tilkynnt í beinni útsendingu í gær.

Hinir bresku raunveruleikaþættir Love Island hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og er þessi þáttaröð engin undantekning. Fjöldi kvartana hefur borist bresku fjölmiðlanefndinni Ofcom vegna þáttanna í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson