Trúlofaður í miðjum skilnaði

Juulia Haart og Silvio Scaglia standa í skilnaði.
Juulia Haart og Silvio Scaglia standa í skilnaði. Skjáskot/Instagram

Viðskiptamaðurinn Silvio Scaglia lætur ekki skilnað koma í veg fyrir ástina. Hann er trúlofaður aftur þrátt fyrir að standa í miðjum skilnaði við raunveruleikastjörnuna Juliu Haart. 

Sú heppna heitir Michelle-Marie Heinemann að því fram kemur á vef Page Six og eru þau trúlofuð eftir stutt samband. „Silvio Scaglia og Michelle-Marie Heinemann eru nýbyrðuð að hittast og eru mjög ástfangin,“ sagði talsmaður hans í vor við bandaríska slúðurmiðilinn. 

Nú virðist sambandið orðið öllu alvarlegra og birti Heinemann mynd af trúlofunarhring á samfélagsmiðlum á meðan þau voru í fríi í Frönsku Pólýnesíu. „Saman að eilífu,“ skrifaði hún. 

Í febrúar fréttist af því að hjónaband Scaglia og Haart væri að líða undir lok en þau hafa komið fram í raunveruleikaþáttunum My Un­ort­hodox Life á Netflix. Scaglia átti meðal annars tískumerkið La Perla og á stóran hlut í umboðskrifstofunni Elite. Eiginkonu hans var sagt upp störfum hjá Elite þegar kólna fór í hjónasænginni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson