„Takk fyrir að eyðileggja Toy Story“

Kendall Jenner klæddist umdeildum Toy Story búning á hrekkjavökunni.
Kendall Jenner klæddist umdeildum Toy Story búning á hrekkjavökunni. Samsett mynd

Fyrirsætan Kendall Jenner hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir umdeildan Toy Story-búning sem hún klæddist í hrekkjavökupartíi um helgina. Kendall klæddi sig upp sem Jessie úr Toy Story- myndunum vinsælu, en mörgum þótti búningurinn heldur kynþokkafullur og var fyrirsætan sökuð um að „eyðileggja barnamyndina“.

Þó búningurinn hafi vakið lukku hjá mörgum aðdáendum Kendall voru þó nokkrir sem bentu á að Toy Story-myndirnar væru ætlaðar yngri áhorfendum, fimm ára og eldri. „Af hverju að kyngera persónu sem er ætluð fyrir börn? Í alvöru, af hverju?,“ skrifaði einn reiður notandi. 

View this post on Instagram

A post shared by Kendall (@kendalljenner)

Fjölmargir skrifuðu ummæli við mynd fyrirsætunnar og sögðu hana hafa eyðilagt Toy Story fyrir sér. „Barnæska mín = ónýt,“ skrifaði einn netverji við myndina. 

Búningur í takt við kvikmyndina Mean Girls

Mörgum þykir Hollywood-stjörnurnar oft fara á mis við hrekkjavökuna þar sem keppst er um að vera í sem kynþokkafyllstum búningi ár eftir ár. Þá benda margir á hina goðsagnakenndu setningu úr kvikmyndinni Mean Girls þar sem hrekkjavakan er útskýrð á allt annan hátt en við könnumst flest við. Kendall virðist lifa eftir þessari setningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson