„Ég elska nasista“

Fjöllistamaðurinn Kanye West.
Fjöllistamaðurinn Kanye West. AFP/Saul Loeb

Fjöllistamaðurinn Kanye West hefur vakið mikla reiði eftir að hann lýst yfir hrifningu sinni á nasistum og aðdáun á Adolf Hitler í streymi með samsæriskenningasmiðnum Alex Jones. 

Viðtalinu var streymt á miðli Jones, InfoWars. West kom þar fram með svarta lambhúshettu sem huldi alveg andlit hans og predikaði um syndir, klám og djöfulinn. 

„Mér líkar vel við Hitler,“ sagði West á einum tímapunkti. Jones sagðist þá einnig sjá góða hluti í Hitler. 

Jones sagði þó að nasistar hefðu verið glæpamenn og að þeir hefðu gert skelfilega hluti.

„En þeir gerðu líka góða hluti. Við þurfum að hætta að tala alltaf illa um nasista... Ég elska nasista,“ sagði West þá. 

West hefur talað opinskátt um geðsjúkdóma sem hann hefur glímt við.

Í síðustu viku tilkynnti hann framboð sitt til forseta árið 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir