Leikkonan Anne Heche var ekki undir áhrifum neinna lyfja þegar hún ók bifreið sinni á hús í Los Angeles í Bandaríkjunum hinn 5. ágúst síðastliðinn. Þetta er niðurstaða krufningar.
Heche lést í slysinu, en hún var 53 ára að aldri. Í rannsókninni kom í ljós að hún hefði notað kókaín og og kannabis áður, en ekki rétt fyrir slysið. Því er ekki talið að neysla hennar hafi haft áhrif á hæfni hennar til að keyra.
Í blóðinu fannst benzolecgonin, óvirka efnið í kókaíni, sem þýðir að hún hafi notað það áður, en ekki fyrir slysið. Þá fundust kannabíóðar í þvagi hennar sem gefur það sama til kynna. Þá fannst einnig fentanyl í blóði hennar, en henni var gefið það við komu á sjúkrahúsið.
Heche lést af völdum brunasára, en hún var svo illa brennd að líkaminn get ekki tekið upp súrefni. Eftir slysið var hún föst inni í bifreið sinni í um það bil 45 mínútur að því er talsmaður slökkviliðsins sagði.