Kvikmyndatónskáldið Hildur Guðnadóttir er tilnefnd til Golden Globe-verðlauna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Women Talking. Tilnefningar til verðlaunanna voru gerðar opinberar rétt í þessu.
Hildur, sem hlaut verðlaunin árið 2020 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Jóker, er tilnefnd í flokki fyrir bestu upprunalegu kvikmyndatónlistina. Hún hlaut ekki tilnefningu fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Tár, en sú kvikmynd hlaut þrjár tilnefningar til verðlaunanna.
Women Talking er einnig tilnefnd fyrir besta handritið en það er Sarah Polley sem skrifaði handritið og leikstýrði.
Golden Globe-verðlaunin verða afhent hinn 10. janúar 2023 í Los Angeles.
Kvikmyndin The Banchees of Inisherin hlaut flestar tilnefningar til verðlaunanna í ár, alls átta. Everything Everywhere All at Once hlaut sex tilnefningar og Babylon og The Fabelmans hlutu fimm hvor.
Kvikmyndin Women Talking fjallar um hóp kvenna sem eru einangraðar í trúarlegu samfélagi. Konurnar þurfa að taka ákvörðun um hvort þær ætli að vera áfram hluti af samfélaginu eða að reyna að yfirgefa það eftir að hafa verið beittar grófu kynferðisofbeldi. Hefur Hildur sagt í viðtölum við fjölmiðla í Bandaríkjunum að það hafi verið erfitt að skrifa tónlistina.
„Ég varð rosalega reið og leið fyrir hönd þessarra kvenna og það sem var gert við þær lamaði mig eiginlega. Ég gat ekki byrjað að nálgast tónlistina því ég var svo reið. Mig langaði ekki til að semja tónlist, mig langaði að lemja einhvern,“ sagði Hildur.